Litagleði · Málarameistarar

Alhliða
málningarþjónusta.

Úti- og innivinna, fjölbýlis- og einbýlishús. Vönduð vinna og fagmennska í fyrirrúmi frá 1996.

Föst verðtilboð, þér að kostnaðarlausu.
Grænt timburhús — skrifstofur Alþingis málaðar af LitagleðiÚr verkasafninu · Skrifstofur Alþingis
Vönduð vinna síðan1996
Löggiltur málarameistariFagmennska í hverju verki
Öll verk, lítil sem stórFyrir heimili og fyrirtæki
Reynsla frá 1996Traust handverk í áratugi
Tilboð án kostnaðarVið skoðum og mælum
Afmælisár 2026

Litagleði í 30 ár.

Árið 2026 fagnar Litagleði 30 ára afmæli. Fyrirtækið var stofnað árið 1996 af Kristjáni Aðalsteinssyni málarameistara.

Við þökkum viðskiptavinum og samstarfsfólki samfylgdina og traustið í gegnum árin.

Sagan okkar
Þjónustan okkar

Frá grunni að góðri áferð.

Hvort sem þarf að fríska upp á heimilið eða taka heilt hús í gegn, sjáum við um verkið.

01 /

Málun innanhúss

Við málum heimili og vinnustaði. Alhliða málningarvinna fyrir einstaklinga og fyrirtæki.

02 /

Málun utanhúss

Einbýli, fjölbýli og atvinnuhúsnæði. Vönduð vinna við stór og smá verkefni.

03 /

Viðgerðir og þvottur

Háþrýstiþvottur, sprungu- og steypuviðgerðir. Góður undirbúningur fyrir fallega áferð.

Augnablik úr vinnunni

Fylgstu með Litagleði.

Myndir af verkunum okkar og lífinu á bak við pensilinn. Fylgstu með okkur á Instagram.

@litagledi

Sérðu ekki myndirnar? Skoðaðu þær á Instagram.

Litagleði á Instagram

Skoða myndir á Instagram
Starfsmenn Litagleði saman við hús á Laufásvegi

Fólkið á bak við verkin · Úr sögu Litagleði

Litagleði frá 1996

Handverk sem
við stöndum með.

Litagleði ehf. var stofnað af Kristjáni Aðalsteinssyni málarameistara árið 1996. Frá upphafi hefur fagmennska og vönduð vinna verið í fyrirrúmi.

Við tökum að okkur inni- og útiverk fyrir einstaklinga og fyrirtæki. Að baki hverju verki býr reynsla sem hefur byggst upp í áratugi.

Kynnstu Litagleði
Viðurkenning fyrir rekstur

Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri

Litagleði er á lista Keldunnar og Viðskiptablaðsins yfir fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri.

Listinn er tekinn saman árlega. Við valið er meðal annars litið til jákvæðrar afkomu, tekna, eigna og eiginfjárhlutfalls, auk skila á ársreikningi og rekstrarforms.

Um viðurkenninguna hjá Keldunni
Samvinna og fagmennska

Málarameistarafélagið

Litagleði er aðili að Málarameistarafélaginu.

Félagið eflir samvinnu meðal málarameistara og stuðlar að menningu og menntun stéttarinnar. Það gætir hagsmuna félagsmanna og er málsvari þeirra gagnvart almenningi og hinu opinbera.

Kynntu þér Málarameistarafélagið
Körfubílar Litagleði við útimálun
Lyftuleiga

Við náum lengra.

Þrír körfubílar til leigu fyrir verkefni í hæð. Sá hæsti nær allt að níundu hæð.

Fyrirspurn um körfubílaleigu
Tökum næsta skref saman

Hvað má gera fyrir þig?

Lítið verk eða stórt. Við tökum vel á móti þér.

Fá tilboð í verkið

Tilboð án kostnaðar.